HOME TLAXCALA
The Translators’ Network for Linguistic Diversity
TLAXCALA’S MANIFESTO  WHO WE ARE  TLAXCALA’S FRIENDS   SEARCH 

OTHER LANGUAGES
SOUTH OF THE BORDER  (Latin America and the Caribbean)
IMPERIUM  (Global Issues)
THE LAND OF CANAAN  (Palestine, Israel)
UMMA  (Arab World, Islam)
IN THE BELLY OF THE WHALE  (Activism in the Imperialist Metropolis)
PEACE AND WAR  (USA, EU, NATO)
THE MOTHER CONTINENT  (Africa, Indian Ocean)

TYPHOON ZONE  (Asia, Pacific Basin)
WITH A K AS IN KALVELLIDO (Diary of a Proletarian Cartoonist)
STORMING BRAINS  (Culture, Communication)
UNCLASSIFIABLE  
TLAXCALAN CHRONICLES  
TLAXCALA’S REFERENCE ZONE   (Glossaries, Dictionaries, Maps)
LIBRARY OF AUTHORS 
GALLERY 
TLAXCALA’S ARCHIVES  

21/06/2010
 

Hugleiðingar um IceSave og stéttabaráttuna


AUTHOR:  Höfundur: Vésteinn VALGARÐSSON


 Íslenska

Í stéttabaráttunni á Íslandi í dag er fjármálaauðvaldið höfuðandstæðingur alls ærlegs fólks. Móthverfan milli þess og almennings á sér ýmsar birtingarmyndir. Það er innlenda fjármálaauðvaldið sem berst á hæl og hnakka gegn því að húsnæðislán verði leiðrétt, þar sem leiðréttingin mundi ganga harkalega á eigið fé lánastofnana. Það er innlent og erlent fjármálaauðvald sem hirti stóran hluta af bankakerfi landsins – aftur – eftir að ríkisvaldið hafði óverðskuldað skorið það úr snörunni. Það er alþjóðlega fjármálaauðvaldið – gjarnan kallað „kröfuhafar» – sem kallaði Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til landsins og lætur hann sjá um að skipuleggja innheimtuna fyrir sig. Það er einkum innlenda fjármálaauðvaldið sem skákar í skjóli lífeyrissjóðanna og beitir þeim fyrir sig. Lífeyrissjóðirnir eru, vel að merkja, hluti af fjármálaauðvaldinu. Já, og svo birtist ein móthverfan í IceSave-hneykslinu.

 

Það virðist annar hver bloggari vera orðinn sérfræðingur í lagatæknilegum klækjum og milliríkjasamningum. Fæstir hinna lærðu bloggara skrifa þó um aðalatriði málsins, sem er réttlætið: Það er ranglátt að íslenskur almenningur borgi fyrir fjárglæframenn. Þess vegna er það óásættanlegt. Umræðan er á villigötum á meðan hún snýst um eitthvað annað en það. Lagaklækir eru aukaatriði. Spurningin sem máli skiptir er hvort fjármálaauðvaldið fær sínu framgengt í þessu máli eins og öðrum, eða hvort spyrnt verður við fæti og vörn snúið í sókn.

Þessi spurning snýst um það hver fer með völdin í landinu. Þegar það fær sitt á undan heimilunum í landinu, þegar kröfur erlendra „fagfjárfesta» ganga fyrir fjármögnun heilbrigðiskerfisins, þegar ríkisstjórnin bíður milli vonar og ótta eftir því að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum þóknist að endurskoða einhverja áætlun – þá fer ekki milli mála að það er fjármálaauðvaldið sem fer ennþá með völdin. Hvers vegna hefði það svo sem átt að hafa breyst? Hvers vegna hefði það átt að missa völdin? „Búsáhaldabyltingin» gekk ekki út á að koma því frá völdum, bara að skipta um fólk í framkvæmdanefnd þess, ríkisstjórninni.

Núverandi ríkisstjórn Íslands er fyrsta flokks dæmi um a.m.k. tvenn gamalgróin sannindi: Að ríkisvaldið er framkvæmdanefnd ráðandi stéttar, og að kratar eru höfuðstoð auðvaldsins.

Þegar ríkisstjórn kemst til valda og er samsett eins og núverandi ríkisstjórn, eftir viðurkenndum leiðum sem eru hannaðar af valdastéttinni í þágu valdastéttarinnar, og dettur auk þess ekki í hug að leita til annarra en valdastéttarinnar sem pólitískra bakhjarla, þá er það einfaldlega ekki á hennar valdi að breyta raunverulega um stefnu. Ætla mætti að hún slyppi því ódýrt frá getuleysi sínu – „ja, við getum það bara ekki» – en það er ekki svo. Viljinn til þess að taka stefnuna burt frá þjónkun við fjármálaauðvaldið er ekki til staðar, enda er það ekki sögulegt hlutskipti krata að setja auðvaldinu skorður, heldur að setja alþýðunni skorður þegar harðnar í ári.

Í IceSave-hneykslinu var almenningur rændur af fjármálaauðvaldinu. Ríkisfangið er aukaatriði, báðar stéttir eru alþjóðlegar í eðli sínu. Í stað þess að sækja Landsbankamenn persónulega til saka, þá er sótt að ríkissjóði Íslands og þess krafist að „við» tökum ábyrgð á ráninu. En það vorum ekki „við», það var fjármálaauðvaldið. Eigendur og stjórnendur Landsbankans áttu miklu meira sameiginlegt með eigendum og stjórnendum annarra vestrænna einkabanka heldur en nokkurn tímann íslenskum almenningi. Þeir tilheyrðu annarri stétt, ráðastétt, valdastétt, stétt gerendanna. Flestir Íslendingar eru náttúrlegir bandamenn flestra Breta og Hollendinga: Við erum venjulegt, vinnandi fólk sem var féflett. Það er ekki hægt að ætlast til þess að sumir þolendur taki allt á sig til þess að aðrir sleppi – og orðið „aðrir» vísar þá einkum til fjármálaauðvaldsins – auðvitað.

Þegar kröfuhafarnir í IceSave-málinu, ríkisstjórnir Breta og Hollendinga (semsé framkvæmdanefndir breska og hollenska fjármálaauðvaldsins), ganga á íslenska ríkið, hverju mæta þeir þá? Viðnámi? Það virðist koma frá flestum öðrum en ríkisstjórninni. Fráleitar kröfur fjármálaauðvaldsins um að íslenskir skattgreiðendur ábyrgist hrun svikamyllu Landsbankans eru óásættanlegar. Ef ríkisstjórnin er til viðræðu um óásættanlegar forsendur, verður það varla skýrt með öðru en að hún þjóni í raun annarlegum hagsmunum. En hvaða aðra kosti á hún svosem í stöðunni? Á hún að ganga á hólm við fjármálaauðvaldið?

Núverandi ríkisstjórn Íslands mun ekki ganga á hólm við auðvaldið vegna þess að hún er sköpuð til að þjóna því. Það eru tóm orð og merkingarsnauð, að kenna ríkisstjórn við „vinstri» eða tala um að byggja upp velferð. Stefnan verður ávallt mörkuð af ríkjandi stétt, og í okkar stéttskipta þjóðfélagi er það auðvaldið sem ræður og svo mun vera þangað til almenningur tekur völdin í sínar eigin hendur. Það verður ljósara og ljósara að það er raunhæfur möguleiki að svo fari. Ég segi ekki að það sé eini möguleikinn – það er jú vissulega líka mögulegt að Ísland verði þrælanýlenda fjármálaauðvaldsins svo lengi sem það er byggt – en það er eini ásættanlegi möguleikinn.

Öreigastétt og auðvald birtast skýrast í dag sem skuldarar og okurlánarar. Hagsmunirnir eru ósamrýmanlegir – já, sjálf tilveruskilyrðin eru ósamrýmanleg. Annað hvort verður að víkja. Fjármálaauðvaldið mun ekki gera það átakalaust. En hvað með almenning?


Source: –

Original article published on March 5, 2010

About the author

Vésteinn Valgarðsson is a guest author at Tlaxcala, the international network of translators for linguistic diversity. This article may be reprinted as long as the content remains unaltered, and the source and author are cited.

URL of this article on Tlaxcala:
http://www.tlaxcala.es/pp.asp?reference=10151&lg=ot



IN THE BELLY OF THE WHALE : 15/03/2010

 
 PRINT THIS PAGE PRINT THIS PAGE 

 SEND THIS PAGE SEND THIS PAGE

 
BACK TO LAST PAGEBACK TO LAST PAGE 

 [email protected]

PARIS TIME  13:40